Monday, July 17, 2006

Afnemum þetta!

Skrýtin þessi umræða um afnám tollaverndar á landbúnaðarvörur. Auðvitað á að fella þetta niður og það sem fyrst. Afnám tolla og verndar er þannig mál að það þarf ekki að þvæla þetta fram og til baka í nefndum og stjórnmálamenn eiga ekki að geta skýlt sér á bak við óljósar niðurstöður úr slíkum nefndum.

Hér á einfaldlega að taka af skarið og ég held að það sé rétt sem Margrét Björnsdóttir skrifaði í Moggann á laugardaginn um pólitískt erindi Samfylkingarinnar að þeir flokkar sem hafa burði í slíkt verkefni eru þessir stóru flokkar, Sjálfstæðismenn og Samfylking. Þeir ættu einfaldlega að mynda fylkingu um að gera þetta og það strax! Jafnvel þótt einstaka bændur í Framsóknarflokknum styggist við, þá verður bara að hafa það. Það er ekki verjandi að setja alla þessa milljarða í landbúnaðarstyrki sem halda á sama tíma matvælaverðinu uppi. Það er nákvæmlega svo einfalt!

Heyrði annars af skemmtilegri uppákomu austur á Fjörðum á dögunum. Þar sáu verkamenn við virkjanaframkvæmdir skyndilega koma keyrandi jeppa mikinn sem var í skoðunarferð um svæðið. Út úr jeppanum stigu svo á endanum farþegarnir - Friðrik Sophusson, Davíð Oddsson, Þorsteinn Pálsson og Styrmir Gunnarsson.

Önnur eins þungavigt hefur sennilega ekki verið samankomin í einu og sama rýminu lengi!
|

7 Comments:

Blogger Bjarki Gunnar Halldórsson said...

Þungarvigtamenn kommon!! Ef í bílnum hefði verið Megas, Andri Snær, Steingrímur J og Björk þá liti dæmið öðruvísi við. Einnig er einkennilegt að ritstjórar hjá sitthvorum miðlinum eru bara geðveikt að bonda og það í ofanálag við hina tvo. Hér er greinilega bara eitt stórt samsæri í gangi.

4:22 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta er ekki rétt, hvurslags blaðamennska er þetta eiginlega. Friðrik Sófusson var ekki einn farþeganna.

Hann var hins vegar bílstjóri.

6:08 AM  
Anonymous Anonymous said...

hey - biður stymmi ekki ýktað vel að heilsa mér?

8:01 AM  
Anonymous Anonymous said...

Spurning að lögjafna frá þarna ákvæðinu um handhafa forsetavalds?

9:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hi! Just want to say what a nice site. Bye, see you soon.
»

9:44 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hi! Just want to say what a nice site. Bye, see you soon.
»

12:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

Greets to the webmaster of this wonderful site. Keep working. Thank you.
»

4:08 PM  

Post a Comment

<< Home